Hætt þessu rugli

Flutt á: http://grusk.blogspot.com/

 

 


Ingibjörg Einstein Jónsdóttir

Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá finnst mér regluleg hreyfing skelfileg. Ég gefst auðveldlega upp, finnst þetta allt tilgangslaust og hreinlega drepleiðinlegt.

Ég er búin að finna upp nýjan hvata til hreyfingar. Hreyfing verður nefnilega að hafa einhvern tilgang. Ekki einungis þann tilgang að líða betur, léttast og styrkjast ( sem ég hef aldrei orðið vör við þegar ég tek mig á), heldur verður þetta að vera leið í átt að ákveðnu, skjótfengnu takmarki.

T.d. um daginn þá bað ég karlinn minn um að skilja bílinn okkar eftir upp á fjalli þegar hann fór á rjúpnaveiðar og labba niður. Ég ætlaði svo að labba upp á fjall og sækja bílinn. Mér hefði aldrei dottið í hug að labba upp á fjall einungis til að labba aftur niður.

Eða fara á hlaupabrettið að hlaupa 3x í viku því takmarkið er að vinna Reykjavíkurmaraþonið. Ég hleyp ekki á hlaupabretti bara til að hlaupa.

Nú er mér búið að detta eitt annað í hug sem myndi svínvirka og koma mér í gang. Kaupa mér hlaupabretti eða hjól. Hjóla eða hlaupa og fylla í leiðinni á rafgeyma sem færu svo í það að hita upp húsið og leggja til rafmagn. Hreyfing sem felur í sér margþættan tilgang og skjótfengið takmark.

Brill?!


Það sem maður vonar að aldrei gerist..

Þar kom að því. Laugardagsrúntur og við keyrum fram á slys. Hvað gerir maður? Við reyndum að gera allt rétt en vel þjálfaðir einstaklingar með allt á hreinu voru næsti bíll á staðinn. Við fylgdumst með þeim og hér með hvet ég alla sem lesa þetta að fara strax á skyndihjálparnámskeið. Hættið að tala um að þið þurfið að fara að drífa ykkur, því það á ekki að þurfa svona atvik til að koma ykkur af stað. Það er of seint.


Tekið af mbl:

Opinber aftaka fór fram í dag á vegum íslamska dómstólasambandsins í Sómalíu, er það önnur opinbera aftakan í landinu á innan við mánuði. Mahad Osman Ugas, sem var 23 ára gamall, var fundinn sekur um að hafa rænt farsíma kaupsýslumanns og myrt hann.

Ætli það sé refsiverðara að ræna farsímanum heldur en að myrða kaupsýslumanninn? Þess vegna er það tekið fram fyrst? Annars finnst mér nú fréttin benda til þess að Mahad hafi myrt farsímann.


Solla býður upp á mítlur og froska

æ æ æ greyið Solla..

Froskur í salatinu um daginn og nú mítlur í döðlunum. Þetta er ekki gott.

Þó froskar og mítlur séu örugglega ekki óholl dýr, þá stóð ég mig samt að því að hika þegar ég ætlaði að grípa himneskrar hollustu graskersfæin í Bónus um daginn. Tók þau samt en það er spurning hvað ég geri næst.............. ?


mbl.is Himnesk hollusta innkallar döðlur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggað til að blogga

Fékk fréttir af USA förunum. Eru í snjóbyl í Rawlings, Wyoming. Ljóminn datt smá af........

Það má segja að ég sé yfirfull af spennu þessa dagana. Tímarnir brátt að breytast og ég get ekki beðið. Frekari fréttir af því í næstu viku.

Búinn að vera frekar undarlegur dagur vinnulega séð. Það eru allir búnir að vera í vondu skapi sem hafi hringt. Geðvonska og nöldur tekið út á mér í samtals 2 klukkutíma. Ekkert sem er mér að kenna og ekkert sem ég get lagað. Langar í snemmbúinn langan hádegismat.

S.s. bara bloggað til að blogga. Hef nákvæmlega ekkert að segja.


Leiðtogi al-Qaeda í Írak sagður hafa verið felldur

MBL í morgun.

Og hvað halda þeir að gerist þá? Einum færri eða hinir 2x öflugri og í hefndarhug. Hver ætlar að stoppa þetta rugl?
Þegar við bjuggum í Brighton þá kynntumst við aðalega fólki frá Austurlöndum, fjær, nær og mið. Ástæða þess var sú að á stúdentagörðunum í Brighton var hverfum skipt eftir því hvort fólk var í Evrópusambandinu eða ekki. Þar sem Ísland er ekki í Evrópusambandinu þá bjuggum við með múslimunum. Ég held að ég hafi varla séð Evrópubúa þarna á háskólasvæðinu, enda ekki mikill samgangur á milli hverfa. Vinkonur mínar voru nánast allar með slæður en tóku þessa ungu kasóléttu kerlu, sem gekk í þröngum kjólum með eins árs barn í eftirdragi, strax inn í hópinn. Ég þorði þó aldrei að segja þeim að ég væri ekki gift ( barn utan hjónabands var hórdómur í þeirra augum) og þegar þær voru að ræða um giftingarnar sínar, þurfti ég iðulega á klósettið eða fékk feikna hóstakast. Ég vildi ekki að hórkerlunni yrði úthýst úr vinahópnum.
Við vorum duglegar að fara í gönguferðir með börnin og það voru nokkur kaffihús sem við vorum fastagestir á. Ég fór þangað stundum ein í gönguferð og fannst voða gott að setjast þangað inn og lesa eða bara horfa út um gluggann og drekka te. Aftur á móti þegar ég var með slæðustúlkunum mínum þá var sagan önnur. Við fengum verstu sætin á kaffihúsinu og sumar þurftu að standa, þurftum að bíða í heila eilífð eftir þjónustu ef þjónustan kom, og fengum svo kuldalegustu framkomu ég sem hef nokkurn tíman upplifað. Ég átti ekki til orð yfir þessum dónaskap en þær sögðu að þetta væri bara venjan. Það væri komið fram við þær eins og 2. flokks fólk og ég varð vitni af svo miklum rudda- og dónaskap í garð okkar að eitt sinn gekk ég út. Þær sögðu að samt væri framkoma starfsfólksins betri með mig meðal hópsins því stundum væri þeim bara hreinlega vísað út.
Yndislegasti hópur kvenna sem ég hef kynnst. Ég verð ennþá pirruð þegar ég hugsa um þetta.

Are you there yet??

Foreldrar mínir, bræður og mágkonur eru þessa stundina í Leifsstöð að innrita sig til USA.

Þó ég sé orðin 29 ára og tveggja barna móðir þá er ég öfundsjúk eins og smástelpa. Það stóð alltaf til að við færum í stóra fjölskylduferð og rúntuðum um Bandaríkin á stórum fjölskyldubíl. Þegar loksins kom að þessu, þá höfum við litla fjölskyldan hvorki tíma né peninga til að taka þátt. Við fórum einn USA rúnt fyrir 12 árum. Leikinn átti síðan að endurtaka í ár með mökum. Þetta tólf ára gamla ferðalag er eitt af skemmtilegustu ferðalögum sem ég hef farið í. Ekki eru áfangastaðir verri þetta árið og vona ég að fjölskyldan eigi eftir að skemmta sér vel þessar vikur sem þau verða á rúntinum.  Ég mun vera í góðu sambandi með: "Are you there yet?".

Ég hlakka líka mikið til að sjá þau aftur.. með iPodinn minn.

 


Veiðieðli og uppstoppaðar rottur...

Maðurinn minn er farinn norður í Húnavatnssýslur til þess að veiða gæs. Veiðieðlið hefur gert rækilega vart við sig eftir að við fluttum austur. Það eru gæsir, hreindýr, endur og bráðum rjúpur. Þess á milli er farið að veiða fisk. Þetta er nokkuð ofar mínum skilningi þó ég sé mjög glöð að maðurinn minn eigi sér svona öflugt áhugamál. Ég ákvað að fara í fyrsta skipi á rjúpu í fyrravetur og eina góða sem ég fékk út úr því voru harðsperrur. Ég dauðvorkenndi rjúpunum sem rúlluðu alblóðugar niður hvítar brekkurnar og í lokin var ég hætt að segja honum ef ég sá rjúpu. Ég reyndi að beina athygli hans í aðra átt og laumaðist svo að hrekja rjúpurnar á flug. Það kom að því að hann tók eftir þessum aðförum mínum og ég held ég sé ekki velkomin á rjúpu aftur. Sem er allt í lagi.

Hann kom af gæsaveiðum eitt kvöldið mjög stoltur. Hann hafði reyndar ekki fengið neina gæs en mætti á svæðið með mink! Þennan ætlaði hann sko að láta stoppa upp! Ég hélt nú aldeilis alls ekki. Að hafa uppstoppaðan MINK! í stofunni hjá mér væri eins og að stoppa upp rottu og skella upp á sjónvarpið. Uppstoppuð dýr í stofum er hryllingur og uppstoppaður MINKUR?!!

minkur

Minkurinn var gefinn.


Ljóð til Ingibjargar

Þú ert ung

Þú ert þung

Þú ert með pung

Höf. Ónafngreindur yfirmaður Ingibjargar


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband